Kauphöllin hefur samþykkt umsókn Straums um aðild að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar en Straumur fékk bankaleyfi í byrjun september. Aðildin verður virk nk. þriðjudag, 27. september 2011. Auðkenni Straums í INET viðskiptakerfinu verður STR.