Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur selt finnska bankann eQ Bank. Söluverðið nemur ríflega 37 milljónum evra. Kaupandinn er Nordnet Group AB sem er sænskt eignastýringarfyrirtæki, skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi. Salan er háð samþykki fjármálaeftirlita í Finnlandi og Svíþjóð segir í tilkynningu. Viðskiptin eiga sér stað að undangengnu ríflega tveggja mánaða uppboðsferli sem hafði það að markmiði að hámarka söluandvirði eignarinnar. Lögð var áhersla á að tryggja gagnsæi og jafnfræði meðal bjóðenda og var hæsta tilboði tekið. HLP Corporate Finance, finnskt ráðgjafafyrirtæki, hafði umsjón með söluferlinu fyrir Straum en Roschier veitti lögfræðiráðgjöf.