Straumur hefur minnkað stöðu sína í eigin bréfum í 1,78% úr 7,09%, að því er fram kemur í tilkynningu til kauphallarinnar. Ekki kemur fram hver kaupandinn er.

Þetta eru viðskipti upp á 10,2 milljarða króna. Um er að ræða 550 milljón hluti, selda á genginu 18,6.