Straumur fjárfestingabanki [ STRB ] hefur selt allan hlut sinn í sænska rafmerkingarfélaginu Pricer eða 4,4% hlut á fyrsta fjórðungi ársins, samkvæmt upplýsingum frá SIS Ägarservice .Þetta kemur fram í frétt sænska fréttamiðilsins DN Economi.

Gengi viðskiptanna kemur ekki í fréttinni. Gengi Pricer hefur hækkað um 20,4% á síðustu 52 vikum, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.