Eigendur Wood & Company Financial Services (Wood) hafa nýtt sér forkaupsrétt sinn á hlutum í Wood og keypt 50% hlut Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur) í félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi en frá og með deginum í dag hafa eigendurnir tekið yfir alla stjórn á Wood. Í tilkynningunni kemur fram að umsamið kaupverð er 10 milljónir evra, en auk þessa greiða kaupendur 30% af hagnaði Wood næstu tvö ár, en þó ekki hærri upphæð en sem nemur 5 milljónum evra.

Samtímis falla eigendur Wood frá sölurétti á hlutum í Wood til Straums, er losar Straum undan mögulegri skuldbindingu að verðmæti 50 milljón evra.