Straumur Fjárfestingarbanki hf. hefur samið við Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands hf. um sölu og umsjón á 6 ma.kr. lokuðu skuldabréfaútboði á innlendum verðbréfamarkaði. Um var að ræða verðtryggt vaxtagreiðslubréf til 6 ára, vextir greiðast einu sinni á ári en höfuðstóll að sex árum liðnum. Skuldabréfin verða skráð í Kauphöll Íslands hf. Landsbanki Íslands hf. tryggði sölu bréfanna á ávöxtunarkröfunni 4,5% og er sölu lokið.

Tilgangur skuldabréfaútboðsins var að afla fjár til frekari uppbyggingar og vaxtar Straums Fjárfestingarbanka hf.