Straumur -Burðarás fjárfestingabanki hefur samið við Saga Capital um viðskiptavaka með hlutabréf í Straumi fyrir eigin reikning Saga Capital.

Samningurinn felur í sér að Saga Capital setur daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Straums í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði skilvirk og gagnsæ.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum.

Þar kemur fram að tilboð eru sett fram í viðskiptakerfi Kauphallarinnar, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki kr. 1.000.000 að nafnverði á kaup- og söluhlið, á gengi sem Saga Capital ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 2,0%.

Hámarksfjárhæð heildarviðskipta í Straumi sem viðskiptavaki skuldbindur sig til að eiga viðskipti með dag hvern skal nema kr.20.000.000 að nafnverði

Saga Capital hefur viðskiptavakann þann 15. desember 2008.

Í tilkynningu frá Straumi þann 5. desember síðastliðinn kom fram að Straumur hefur einnig samið við Nýja Kaupþing banka hf.(Nýja Kaupþing) um viðskiptavaka með hlutabréf í Straumi fyrir eigin reikning Nýja Kaupþings.

Samkvæmt samningnum skuldbindur Nýja Kaupþing sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í að lágmarki kr. 1.000.000 að nafnverði í Straumi og skulu tilboð vera á því gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%.

Hámarksfjöldi hluta sem Nýja Kaupþing skuldbindur sig, samkvæmt samningnum, til að eiga viðskipti með dag hvern er 25.000.000 að nafnvirði.

Nýja Kaupþing hóf viðskiptavaktina 11. desember s.l.