Straumur-Burðarás hefur gert viðskiptavakasamninga við Íbúðalánasjóð og Seðlabanka Íslands, fyrir hönd ríkissjóðs.
Markmið samnings við Íbúðalánasjóð er að treysta verðmyndun á íbúðabréfum og stuðla að auknum seljanleika þeirra á eftirmarkaði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum.
Þar kemur fram að í samningnum felst að Straumur er skuldbundinn til að leggja fram tilboð að lágmarki 300 milljónir króna að nafnverði í hverju útboði Íbúðalánasjóðs. Á eftirmarkaði Kauphallarinnar er Straumur skuldbundinn til að leggja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 milljónir króna að nafnverði og endurnýja þau innan 10 mínútna frá því þeim hefur verið tekið. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða er eftirfarandi eftir flokkum íbúðabréfa:
- HFF 14 : 0,50%
- HFF 24 : 0,75%
- HFF 34 : 0,85%
- HFF 44 : 0,95%
Þá kemur fram að ef Straumur hefur átt viðskipti á einum degi fyrir 300 milljónir króna að nafnverði er Straumi heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
„Markmið samnings við Seðlabanka Íslands er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á markaði með ríkisverðbréf,“ segir í tilkynningunni.
Í samningnum felst að Straumur er skuldbundinn að leggja fram tilboð að lágmarki 100 milljónir króna að nafnverði í hverju útboði með ríkisverðbréf. Á eftirmarkaði Kauphallarinnar er Straumur skuldbundinn að leggja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 milljónir króna að nafnverði og endurnýja þau innan 10 mínútna frá því þeim hefur verið tekið. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða er eftirfarandi eftir flokkum ríkisverðbréfa:
- Líftími 3 - 6 mánuðir : 0,10%
- Líftími 6 - 12 mánuðir : 0,15%
- Líftími 1 - 2 ár : 0,20%
- Líftími 2 - 4 ár : 0,30%
- Líftími 4 - 6 ár : 0,40%
- Líftími 6 - 9 ár : 0,70%
- Líftími 9 ár eða lengri : 0,90%
Þegar líftími er þrír mánuðir eða skemmri er Straumi aðeins skylt að leggja fram kauptilboð.
Ef Straumur hefur átt viðskipti á einum degi fyrir 300 milljónir króna að nafnverði er Straumi heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.