Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur farið þess á leit við Héraðsdóm Reykjavíkur að bankanum verði veitt heimild til greiðslustöðvunar.
Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að tilgangur greiðslustöðvunarinnar er að koma nýrri skipan á fjármál félagsins og gera félagið rekstrarhæft á ný í samvinnu við lánadrottna.
Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur Straums í byrjun síðustu viku og var stjórn bankans þá sett af. Í kjölfarið var skipuð skilanefnd sem nú fer með forræði bankans.
Sjá tengdar fréttir hér að neðan.