Nú er að hefjast hinn árlegi Umhverfisdagur atvinnulífsins, en þar verða tvenn verðlaun veitt til fyrirtækja sem þykja hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Annars vegar verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins.

Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Í ár er viðburðinum eingöngu streymt rafrænt í opinni dagskrá á vef SA, samfélagsmiðlum og fjölmiðlum. Dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10.

Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, en Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands afhendir viðurkenningu fyrir umhverfisframtak ársins og til umhverfisfyrirtækis ársins.

Ávörp flytja:

  • Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
  • Kristín L. Árnadóttir, aðstoðarforstjóri LV
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion
  • Jónína G. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Terra
  • Ari Edwald, forstjóri MS