Rússneska demantafyrirtækið, Almazy Sakha Rossii, betur þekkt sem Alrosa, á nú í viðræðum sem gætu orðið til þess að fyrirtækið verði skráð á hlutabréfamarkað á síðari hluta árs. Yfir 20% af demöntum sem framleiddir eru í heiminum koma frá Alrosa, sem er í eigu ríkisins.