Í gær var gengið formlega frá samruna OMX við Nasdaq en með þessum samruna er orðið til stærsta kauphallarfyrirtæki í heimi, Nasdaq OMX Group.

Íslenska kauphöllin verður hluti af hinu nýja fyrirtæki og kemur þetta fram í tilkynningu frá henni.

Nasdaq OMX Group verður skráð fyrir 33,3% hluta í DIFX kauphöllinni í Dubai.