Stærsti bílafarmur sögunnar sem komið hefur með flugi til Keflavíkurflugvallar kom í gærkvöldi þegar Boeing 747-200 flutningavél ATLAS AIR lenti á Keflavíkurflugvelli með 39 bíla innanborðs.

Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Þar kemur fram að það er framleiðandi Volkswagen sem flytur bílana til landsins en um borð í þotunni voru 39 bílar af nýjustu kynslóð Volkswagen Golf.

Bílarnir verða notaðir á heimsfrumsýningu Golf hér á landi en 1500 blaðamenn og myndatökumenn eru væntanlegir til landsins til að reynsluaka nýja Golfinum. Reykjanesskaginn mun meðal annars leika stórt hlutverk í þeirri kynningu.

Það var tímafrekt að afferma þotuna á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi og nótt, því bílunum var staflað í tvær hæðir og bílarnir voru rækilega festir niður á flutningspalla.