Jakob Frímann Magnússon tónlistar- og athafnamaður er genginn til liðs við Flokk fólksins og mun skipa efsta sætið á lista flokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Flokkur fólksins greinir frá þessu í fréttatilkynningu en í gær greindu Austurfréttir frá því að Jakob myndi leiða flokkinn í kjördæminu og hefur það nú verið staðfest.

„Ég hef hrifist af stefnumálum Flokks fólksins þar sem áhersla er lögð á að útrýma fátækt og óréttlæti á Íslandi. Það er sjálfsögð krafa að allir fái lifað mannsæmandi lífi í einu af auðugustu samfélögum heims. Hér á enginn að búa við bág kjör að afloknu ævistarfi, hlúa þarf betur að þeim sem hafa lent í áföllum eða búa við skerta orku og allir eiga að njóta jafnra tækifæra til menntunar og tómstundastarfs. Alvöru velferðarsamfélag byggist á heilbrigðu samhengi milli verðmætasköpunar og mannúðar," er haft eftir Jakobi Frímanni í tilkynningunni.

Jakob Frímann er stofnandi Stuðmanna og hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum. Hann var m.a. sendi­full­trúi ut­an­rík­isþjón­ust­unn­ar, sat á þingi sem varaþingmaður Samfylkingarinnar, gegndi stöðu framkvæmdastjóra miðborgarmála í áratug, var formaður Félags tónskálda og textahöfunda um árabil, formaður, STEFS, Sambands tónskálda og textahöfunda, formaður SAMTÓNS, stjórnarformaður ÚTÓNS - Útflutningsskrifstofu tónlistarinnar og stofnaði umhverfissamtökin Græna herinn.