Frá því að Dwight Eisenhower var forseti Bandaríkjanna hefur ánægja með störf forseta ekki ráðist jafn mikið af flokkslínum á öðru ári kjörtímabils. Þetta kemur fram á vef Gallup í Bandaríkjunum.

Ánægja með störf Barack Obama meðal stuðningsmanna Demókrataflokksins er 81% en aðeins 13% Repúblíkana eru ánægðir með störf hans. Er munurinn 68 prósentustig.  Hér fyrir neðan má sjá töflu yfir mun á vinsældum forseta á öðru ári fyrsta kjörtímabils þeirra eftir flokkum.

Gallup.
Gallup.
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)