Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um þrjú prósentustig milli mælinga og segjast tæplega 57% þeirra sem taka afstöðu styðja stjórnina. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.

Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna eða á bilinu 0,2-0,9 prósentustig. Slétt 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 15% Samfylkinguna, tæplega 14% Vinstri græn, næstum 11% Pírata, tæplega 11% Viðreisn, rúmlega 10% Miðflokkinn, tæplega 9% Framsóknarflokkinn, nær 4% Sósíalistaflokkinn og nær sama hlutfall Flokk fólksins.

Liðlega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og sama hlutfall segist myndi skila auðu eða ekki kjósa.