Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um tæplega þrjú prósentustig og fylgi Flokks fólksins um tæplega tvö prósentustig. Fylgi Sósíalistaflokksins og Pírata eykst hins vegar um tvö prósentustig. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup .

Næstum 13% kysu Pírata ef kosið yrði til Alþingis í dag, nær 9% Framsóknarflokkinn, rúmlega 5% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 4% Flokk fólksins. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,3-1,5 prósentustig. Rösklega 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 19% Samfylkinguna, ríflega 11% Vinstri græn, rúmlega 9% Viðreisn og rösklega 6% Miðflokkinn.

Ríflega 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og rúmlega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi við ríkisstjórnina eykst um fjögur prósentustig milli mánaða, en liðlega 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.