MMR hefur birt niðurstöður úr nýrri könnun á fylgi stjórnmálaflokka og stuðningi við ríkisstjórnina. Könnunin var framkvæmd á tímabilinu 20. til 25. september sl.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,2%, borið saman við 28,2% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 18,8%, samborið við 17,8% í síðustu könnun og var fylgi Samfylkingarinnar nú 15,2%, borið saman við 16,9% síðast.

Vinstri-græn mældust nú með 12,5% fylgi og eykst fylgið um 2,1% frá síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3%, borið saman við 11,3% í siðustu könnun og mældist fylgi Pírata 9,7%, borið saman við 9,2% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 34,0% en mældist 36,3% í síðustu mælingu.