Stuðningur við ríkisstjórnin mælist 46,8% samkvæmt könnun MMR sem framkvæmd var 16.- 19. júní og minnkar um þrjú prósentustig frá síðustu könnun. Stjórnarflokkarnir þrír mælast hins vegar samanlagt með 41,1% fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist hæstur með 24,3% fylgi sem er um 1,6% hærra frá síðustu könnun sem gerð var fyrr í mánuðinum. Fylgi Vinstri grænna lækkaði um 0,4% milli kannana og stendur nú í 10,7%. Fylgi Framsóknarflokksins lækkaði um slétt 3% frá síðustu könnun og stendur nú í 6,1%.

Samfylking mælist næsthæst með 16,3% en fylgi þeirra mældist 12,4% í síðustu könnun. Fylgi Pírata hækkaði einnig og mælist nú í 13,2%. Fylgi Viðreisnar lækkaði um 1,2% niður í 10,0% og Miðflokkurinn lækkaði um 4,5% í 8,0%

Fylgi Sósíalistaflokksins mældist nú 3,5% og Flokkur fólksins fékk 5,4% fylgi í könnuninni. Heildarfjöldi svarenda var 1.045 einstaklingar, 18 ára og eldri. MMR tekur fram að allar niðurstöður hafa vikmörk sem miðað við 1.000 svarendur geta verið allt að +/- 3,1%.