Nafni fyrirtækisins Sturlaugur Jónsson & Co hefur nú verið breytt í Sturlaugur & Co og jafnframt hefur fyrirtækið flutt starfsemi sína í Fiskislóð 14. Þá hefur merki fyrirtækisins einnig verið breytt.

Fyrirtækið var 80 ára á síðasta ári og á þessum tíma hefur þjónusta við sjávarútveginn verið ein aðalstarfsemi þess. Þótt þjónusta við sjávarútveginn sé enn stór þáttur í starfseminni hefur önnur starfsemi eflst mikið á undanförnum misserum og á síðasta ári sameinaðist fyrirtækið véladeild Ormsson.

Vöruúrval og þjónusta fyrirtækisins er mun víðfemari en áður og snýst nú í auknum mæli um sölu á vinnuvélum, traktorum og öðrum landbúnaðarvélum, lyfturum, rafstöðvum og fleiri vörum.