Þann 24. nóvember sl. var tilkynnt að Chris McClure hefði verið ráðinn sem framkvæmdastjóri söluvefsíðunnar Bland.is.

Haukur Skúlason, fjármálastjóri Moberg Group, móðurfélags Bland.is staðfestir hins vegar í samtali við Viðskiptablaðið að Chris er ekki lengur framkvæmdastjóri Bland.is. Skorri Rafn Rafnsson, stofnandi Moberg Group, hefur tekið við sem framkvæmdastjóri. Haukur vill þó ekki gefa upp ástæðu brotthvarfsins eða hver hefði átt frumkvæðið af skjótu brotthvarfi Chris.