Bandaríski bankinn UBS hefur lýst yfir að hann hyggist taka yfir brasilíska fjárfestingarbankann Banco Pactual fyrir allt að 2,6 milljörðum dollara, eða 187 milljarða króna, en þetta yrðu stærstu kaup UBS í sex ár. Hernaðaráætlun bankans er að bæta við starfsemi sína á hraðvaxtarmörkuðum og eru kaupin hluti af henni. UBS mun staðgreiða einn milljarð dollara og borga svo allt að 1,6 milljörðum dollara á fimm árum, eftir afkomu félagsins.
Mittal Steel til í að endurskoða boð í Arcelor
Stálfyrirtækið Mittal Steel segist tilbúið að endurskoða 21,5 milljarða evru tilboð sitt í keppinautinn Arcelor ef stjórn Arcelor mælir með tilboðinu við hluthafa. Stjórnarformaður Arcelor neitaði kollega sínum hjá Mittal um fund í fyrradag. Hlutabréf í Arcelor hækka um 2%.
Munich Re sýnir aukinn hagnað
Hagnaður tryggingafélagsins Munich Re hækkar um 41% á fyrsta ársfjórðungi og nemur 959 milljónum evra, eða 88 milljörðum króna. Fá stjórtjón og lækkandi kostnaður stuðla að þessum bætta hag fyrirtækisins og stjórnendur þess segja að spá um hagnað á árinu standi óbreytt.
Breytinga talið að vænta á ríkisstjórn Frakklands
Bollaleggingar um hugsanlega breytingu á frönsku ríkisstjórninni fá byr undir báða vængi eftir að náinn ráðgjafi innanríkisráðherrans Nicolas Sarkozy segir að forsætisráðherrann, Dominique de Villepin, verði að sanna sakleysi sitt eða víkja.