Stýrihópur um fíkniefnamál sem ríkisstjórnin samþykkti að setja fót núna í morgun er ætlað að tryggja gott samstarf á milli ráðuneyta og stofnana í þessum málaflokki hvað varðar upplýsingagjöf, forvarnir, meðferðarúrræði og fleira. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

„Í hópnum verða fulltrúar frá forsætisráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og dómsmálaráðuneyti. Samspil heilbrigðiskerfis, félagslegs kerfis, menntakerfis og löggæslu- og tollgæslu í forvörnum og viðbrögðum almennt við fíknivanda er forsenda fyrir því að raunverulegur árangur náist. Jafnframt verður stofnað samtengt viðbragðskerfi þeirra stofnana sem að málinu koma þar sem stofnanir vinna sameiginlega að málum tengdum fíkniefnavanda.“