celandic Water Holdings hefur ráðið Roger Barrey sem framkvæmdastjóra alþjóðasviðs en hann hefur yfir 20 ára reynslu af sölu drykkja. Roger Barrey starfaði áður sem stjórnandi á alþjóðasviði hjá Anheuser-Bush-InBev og Coca Cola. Sem framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða hjá Icelandic Water Holdings er Roger ábyrgur á alþjóðlegum vexti Icelandic Glacial utan Bandaríkjanna og Kanada samkvæmt tilkynningu frá félaginu.

"Sterkir stjórnendur á borð við Roger eru mikilvægir fyrir fyrirtækið til að við vöxum áfram alþjóðlega. Við hlökkum til framtíðar fyrirtækisins og við erum viss um að Roger komi til með að aðstoða okkur við að marka þau spor," er haft eftir Jóni Ólafsson, forstjóra Icelanci Water Holdings í tilkynningu í lauslegri þýðingu Viðskiptablaðsins.