Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Við breytinguna fara stýrivextir í 5%. Ákvörðunin er í samræmi við væntingar greiningaraðila. IFS Greining hafði gert ráð fyrir óbreyttum vöxtum.

„Horfur um efnahagsumsvif eru í megindráttum svipaðar og í febrúarspá Seðlabankans. Gengi krónunnar er hins vegar veikara en í febrúar og verðbólguhorfur til skamms tíma hafa versnað nokkuð frá því sem var gert ráð fyrir í spánni. Litið lengra fram á veginn er hætta á að verðbólga verði lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið en spáð var, styrkist krónan ekki á komandi mánuðum. Í hvaða mæli þétting á glufum í gjaldeyrislögum mun hafa áhrif á gengi krónunnar kemur í ljós á næstunni,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

„Eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum verður nauðsynlegt að draga úr slaka peningastefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Batni verðbólguhorfur ekki er líklegt að hækka þurfi nafnvexti frekar á næstunni til þess að taumhald peningastefnunnar, sem er enn tiltölulega laust, verði hæfilegt.“