Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur.

Í yfirlýsingu nefndarinnar segir:

„Þjóðhagsspáin sem birtist í Peningamálum í dag staðfestir að batinn sem hófst síðla árs 2010 heldur áfram og nær til flestra sviða efnahagslífsins. Þróttur innlendrar eftirspurnar er töluverður og sjást skýr merki um bata á vinnu- og fasteignamarkaði. Fjármálaleg skilyrði einkageirans halda áfram að batna.

Horfur eru á ívið meiri hagvexti en í febrúarspá Seðlabankans. Verðbólga hefur hins vegar verið meiri en spáð var í febrúar og verðbólguhorfur hafa versnað, að nokkru leyti vegna þess að gengi krónunnar hefur verið veikara. Að öðru óbreyttu eru horfur á að verðbólga verði lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið en spáð var í febrúar, einkum haldist gengi krónunnar áfram lágt. Eftir því sem efnahagsbatanum vindur frekar fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að halda áfram að draga úr slaka peningastefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Dragi ekki úr verðbólgu á næstu mánuðum verður að óbreyttu ekki komist hjá frekari hækkun nafnvaxta svo að tryggja megi að verðbólga leiti á ný í markmið.“