Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1 prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,75%. „Peningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar á næstu mánuðum til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar. Hús segir að ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum muni skipta miklu um hversu hátt vextir þurfi að fara.

Nefndin bendir á að verðbólga hafi mælst 7,2% í apríl og „horfur hafa versnað verulega“. Hækkun húsnæðisverðs og annarra innlendra kostnaðarliða vegi þar þungt auk þess sem alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hefur hækkað mikið. Verðhækkanir séu því á breiðum grunni sem endurspeglast í hraðri aukningu undirliggjandi verðbólgu sem mælist ríflega 5%. Auk þess hafi verðbólguvæntingar „hækkað á alla mælikvarða“.

Seðlabankinn spáir því verðbólga aukist í rúmlega 8% á þriðja fjórðungi ársins sem er 2,8 prósentum meiri verðbólga en spáð var í febrúar.

„Gert er ráð fyrir að samspil vaxtahækkana og hertra lánþegaskilyrða muni hægja á verðhækkun húsnæðis og innlendri eftirspurn.“

Seðlabankinn gerir ráð fyrir 4,6% hafvexti í ár en að hann verði tæplega 3% á næstu tveimur árum. Efnahagshorfur hafi versnað frá febrúarspá bankans vegna neikvæðra áhrifa innrásar Rússlands í Úkraínu.

„Á hinn bóginn eru vísbendingar um talsverðan þrótt innlendra umsvifa. Slakinn í þjóðarbúinu virðist horfinn og spenna tekin að myndast á vinnumarkaði.“