Seðlabanki Evrópu tilkynnti í dag ákvörðun sína um að hækka stýrivexti á Evrusvæðinu í 3% úr 2,75%.

Sérfræðingar höfðu búist við vaxtahækkuninni. Seðlabanki Englands hækkaði einnig stýrivexti sína í dag um 25 punkta í 4,75%.

Greiningardeild Kauþings banka segir að vaxtahækkunin ætti að virka eins og innlend vaxtahækkun, en sérfræðingar búast einnig við að Seðlabanki Íslands hækki stýrivexti í ágúst.

"Ljóst er að bróðurpartur erlendra skulda Íslendinga er í evrum á breytilegum vöxtum og því mun vaxtahækkun þar á bæ hafa talsverð áhrif hér á landi," segir greiningardeildin.

?Í fyrsta lagi mun hærri fjármagnskostnaður leiða til aukins flæði fjármagns úr landi sem hefur áhrif til veikingar krónunnar. Í öðru lagi ætti aukin fjármagnskostnaður þá sér í lagi fyrirtækja í landinu - en lítið er um að heimili skuldi í erlendri mynt ? að hjálpa til við að draga úr þenslu í hagkerfinu og verka líkt og innlend vaxtahækkun," segir greiningardeild Kaupþings.