Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 0,25% prósentustig. Munu þeir því fara úr 3,75% niður í 3,5%. Þetta kemur fram á vef bankans .

Þessi vaxtaákvörðun er sú fyrsta í embættistíð Ásgeirs Jónssonar, en hann tók formlega við embætti Seðlabankastjóra af Má Guðmundssyni í byrjun síðustu viku.

Greiningardeildir bankanna spáðu allar að vextir yrðu lækkaðir og þarf ákvörðunin því ekki að koma mikið á óvart.

„Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í ágústhefti Peningamála er gert ráð fyrir 0,2% samdrætti í ár sem er lítillega minni samdráttur en spáð var í maí. Stafar það einkum af þróttmeiri vexti einkaneyslu en framlag utanríkisviðskipta er einnig hagstæðara þar sem eftirspurn beinist í meira mæli að innlendri framleiðslu og vegur það upp á móti meiri samdrætti í ferðaþjónustu. Hagvaxtarhorfur fyrir næsta ár hafa hins vegar versnað þar sem útlit er fyrir að það taki ferðaþjónustuna lengri tíma að ná sér á strik eftir áföll ársins.

Verðbólga var 3,4% á öðrum fjórðungi ársins en minnkaði í 3,1% í júlí. Undirliggjandi verðbólga hefur þróast með áþekkum hætti. Horfur eru á að verðbólga hjaðni hraðar en spáð var í maí og að hún verði komin í markmið á fyrri hluta næsta árs. Gengi krónunnar hefur hækkað um liðlega 2% milli funda og gjaldeyrismarkaður verið í ágætu jafnvægi. Verðbólguvæntingar hafa lækkað í markmið frá síðasta fundi og taumhald peningastefnunnar því aukist lítillega.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar.