Seðlabankinn mun lækka stýrivexti um 0,5 prósentustig úr 2,75% í 2,25% og hafa þeir aldrei verið lægri. Ástæðan er að vinna gegn neikvæðum efnahagsáhrifum sem útbreiðsla kórónuveirunnar hefur valdið.

Þá mun bindiskylda á bankana einnig lækka með það að markmiði að rýmka lausafjárstöðu bankanna og auka svigrúm þeirra til að bregðast við stöðunni.

Peningastefnunefnd flýtti vaxtaákvörðun sinni um viku í gær vegna stöðunnar en hann átti að fara fram 18. mars. Kynningarfundur vegna ákvörðun nefndarinnar verður haldinn klukkan tíu í dag.

Yfirlýsing peningastefnunefndar í heild sinni:

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,50 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 2,25%.

Jafnframt hefur nefndin ákveðið að lækka meðaltalsbindiskyldu innlánsstofnana úr 1% niður í 0%. Föst bindiskylda verður áfram 1%. Lækkun meðaltalsbindiskyldunnar og breytt meðferð á föstu bindiskyldunni í lausafjárreglum munu rýmka lausafjárstöðu bankanna og auka svigrúm þeirra til að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðarbúskapnum.

Með þessum aðgerðum er slakað nokkuð á taumhaldi peningastefnunnar í ljósi versnandi efnahagshorfa í kjölfar aukinnar útbreiðslu COVID-19-veirunnar.

Peningastefnunefnd mun áfram fylgjast grannt með framvindu efnahagsmála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóðarbúskapinn.