Peningastefnunefnd hefur ákveðið að lækka stýrivexti Seðlabanka Íslands um 1,5 prósentur í 15,5%. Aðrir vextir Seðlabankans verða einnig lækkaðir í sama mæli. Miðað við spár greiningaraðila er þetta ívið meira en gert var ráð fyrir.

Klukkan 11 í dag verður síðan kynningarfundur bankans af þessu tilefni sendur út á vef bankans jafnframt því sem birt verða nánari rök fyrir ákvörðun peningastefnunefndar.