Peningastefnunefnd hefur ákveðið að lækka stýrivexti Seðlabanka Íslands um 100 punkta, úr 18% í 17%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum en aðrir vextir Seðlabankans verða einnig lækkaðir í sama mæli.

Klukkan 11 í dag verður kynningarfundur bankans af þessu tilefni sendur út á vef bankans jafnframt því sem birt verða nánari rök fyrir ákvörðun peningastefnunefndar.