Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 6%. Þetta er í samræmi við væntingar.
Fram kemur í forsendum vaxtaákvörðunarinnar að efnahagshorfur til næstu þriggja ára eru samkvæmt nýrri spá Seðlabankans sem birtist í dag í stórum dráttum svipaðar og spáð var í maíhefti Peningamála . Horfur eru þó á að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði ívið meiri í ár og út spátímann.
Þá segir að verðbólguhorfur hafi heldur batnað því bankinn gaf út spá sína í maí og er útlit fyrir að verðbólga verði nálægt markmiði á spátímanum. Framleiðsluspenna myndist seinna og verði hún ekki eins mikil og í síðustu spá. Þá hafa verðbólguvæntingar lítið breyst að undanförnu og eru enn yfir markmiði ef horft er til lengri tíma.
Peningastefnunefnd segir ennfremur að slakinn í taumhaldi peningastefnunnar er líklega horfinn og miðað við grunnspá bankans er útlit fyrir að núverandi vaxtastig dugi til að halda verðbólgu í markmiði. Kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætu þó leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir Seðlabankans þyrftu að hækka frekar.
Um krónuna segir:
„Gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans undanfarið ár hafa stuðlað að auknum stöðugleika krónunnar. Á þessu ári hefur bankinn keypt gjaldeyri verulega umfram það sem hann hefur selt bæði í reglulegum kaupum og óreglulegum viðskiptum. Stefnt er að því að regluleg kaup haldi áfram í núverandi umfangi svo lengi sem aðstæður breytast ekki umtalsvert. Eftir sem áður mun Seðlabankinn beita óreglulegum viðskiptum í því skyni að draga úr sveiflum í gengi krónunnar.