Peningastefnunefnd hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum og verða því meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum 4,25% áfram.

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum þjóðhagsreikninga sem Hagstofa Íslands birti nýlega var hagvöxtur á fyrsta fjórðungi ársins 6,6% sem er töluvert meiri vöxtur en mældist á seinni hluta síðasta árs.

Þetta er aðeins meiri vöxtur en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í maí en í meginatriðum er þróunin í samræmi við spá bankans. Áfram eru því horfur á að dragi úr hagvexti á árinu með hægari vexti útflutnings og innlendrar eftirspurnar. Þróun íbúðaverðs og vísbendingar af vinnumarkaði benda í sömu átt.

Verðbólga hjaðnaði í 2% í maí en undanfarna mánuði hefur bæði mæld og undirliggjandi verðbólga verið í grennd við 2½% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað.

Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar hefur lækkað aðeins frá síðasta fundi peningastefnunefndar en gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Verðbólguvæntingar virðast á heildina litið í ágætu samræmi við verðbólgumarkmið bankans.

Horfur eru á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum. Eigi að síður er áfram þörf fyrir peningalegt aðhald í ljósi mikils vaxtar innlendrar eftirspurnar og undirliggjandi spennu á vinnumarkaði.

Vextir verða því sem hér segir:

  • Daglán: 6,00%
  • Lán gegn veði í verðbréfum: 5,00%
  • Innlán bundin í 7 daga: 4,25%
  • Viðskiptareikningar: 4,00%
  • Bindiskyldar innstæður: 4,00%