Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 18%, segir í fréttatilkynningu. En í dag var stýrivaxtaákvörðunardagur.

Sem kunnugt er mótast stefnan í efnahagsmálum á næstunni í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Búist er við að endanleg ákvörðun liggi brátt fyrir og að aðgerðaráætlun birtist í kjölfarið. Bankastjórn Seðlabankans mun greina frá stefnunni í peningamálum í framhaldi þess, segir í fréttatilkynningunni.