Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 13,75%.
Í frétt sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða rökin að baki ákvörðunar bankastjórnar kynnt.
Næsta ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um stýrivexti verður birt fimmtudaginn 14. febrúar 2008.