Styrking krónunnar hefur minni áhrif til lækkunar á vöruverði heldur en veiking hennar hefur á hækkun á vöruverði. Þetta er meginniðurstaða rannsóknar sem Rannsóknasetur verslunarinnar og eru birtar í skýrslunni Áhrif gengis á verðlag. Skýrsluna, sem birt er í dag, má lesa hér .

Þar er fjallað um hvernig þróun gengis hefur áhrif á verðlag og sjónum sérstaklega beint að sérkennum Íslands. Metin eru áhrif gengisbreytinga á verðlag innfluttra matvæla, raftækja og byggingarefna. Jafnframt er kannað hvort áhrif gengis á verðlag sé mismunandi eftir því hvort um styrkingu krónunnar eða veikingu er að ræða.

Niðurstöður benda til að gengisbreytingar koma að fullu fram í verðlagi allra vöruflokkanna. Vísbendingar eru þó um að styrking krónunnar hafi í öllum tilvikum minni áhrif á verðlag en veiking gerir.

„.Niðurstöðurnar staðfesta þannig þær fullyrðingar sem oft er varpað fram um að viðbrögð fyrirtækja séu ólík eftir því hvort gengi styrkist eða veikist, en eins og fram kemur í greininni er slík hegðun fyrirtækja ekki sér íslenskt fyrirbæri,“ segir í frétt á vefsíðu Rannsóknarseturs verslunarinnar.