Tap Farice á síðasta ári nam tæplega 7,2 milljónum evra eða rúmum 1100 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var hins vegar 6,7 milljónir evra og jókst um 72,4% frá fyrra ári. Afskriftir námu 7,6 milljónum evra og fjármagnskostnaður var um 6,3 milljónir evra. Ársreikningur fyrirtækisins var birtur í dag.

Heildartekjur félagsins námu 12,3 milljónum evra og jukust um 20,7% frá fyrra ári. Kostnaður lækkaði um 11,5%.  Handbært fé frá rekstri fór úr 1,3 milljónum evra í 4,3 milljónir evra.

Fjármagnskostnaður jókst um 4,1 milljónir evra miðað við árið 2012 sem skýrist  alfarið af styrkingu íslensku krónunnar en helsta lán félagsins er í íslenskum krónum. Áfram er gert ráð fyrir bata í rekstri og félagið er í skilum með öll lán.

Farice ehf.  er fyrirtæki á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd og er hluti af innviðum Íslands og ein af grunnstoðum íslensks samfélags.  Fyrirtækið rekur tvo sæstrengi á milli Íslands og Evrópu og kaupir framhaldssambönd á landi og býr þannig til samskiptakerfi fyrir Ísland sem tengist öðrum  samskiptakerfum í helstu tengistöðvum í Evrópu.

Í tilkynningu segir að á síðasta ári hafi kerfisrekstur félagsins gengið vel og ekkert rof orðið á sambandi Íslands við umheiminn.  Endabúnaður sæstrengja félagsins var endurnýjaður á síðasta ári sem margfaldar flutningsgetu kerfisins og félagið því vel í stakk búið til að mæta þörf fyrir aukna bandvídd gagnavera og almennra notenda.