Gengið hefur verið frá styrkveitingum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar á sviði ferðaþjónustu 2008-2009. Styrkirnir voru auglýstir í janúar s.l. og voru 160 milljónir króna til úthlutunar. Umsóknarfrestur rann út 5. febrúar og bárust alls 303 umsóknir. Alls hlutu 77 verkefni styrk. Þetta kemur fram á vef Iðnaðarráðuneytisins.

Hæstu styrkina hlutu Sögugarður í Grundarfirði og Félag áhugamanna um víkingaverkefni á slóðum Gísla Súrssonar á Þingeyri, sex milljónir hvort verkefni.

Við mat á umsóknum var m.a. tekið tillit til hlutfalls starfa í veiðum og vinnslu á viðkomandi svæði, fjölda tonna sem skerðast, gæða og mögulegs árangurs verkefna auk fjölda starfa sem þeim er ætlað að skapa.

Iðnaðarráðuneytið hefur falið Ferðamálastofu að gera samninga við styrkþega um framvindu og árangursmat verkefnanna en styrkirnir verða greiddir út í tvennu lagi.

Hér má sjá lista yfir þá styrki sem veittir voru.