Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) greina frá því að þau muni styrkja Hafrannsóknastofnun um 65 milljónir króna til loðnurannsókna í desember.

„Mælingar á loðnustofninum við Ísland hafa gengið erfiðlega á umliðnum tveimur árum, með þeim afleiðingum að engin loðnuvertíð var í fyrra eða í ár. Í ljósi þess að fiskveiðar eru helsta stoð íslensks efnahagslífs, þá er þessi staða einstaklega óheppileg. Óyggjandi vísbendingar úr mælingum á umliðnum mánuðum eru á þá leið að veiðistofninn sé sterkur. Að frumkvæði SFS og í samstarfi við Hafrannsóknastofnun var af þessum sökum farinn leiðangur á einu skipi nú í nóvember þar sem sýnum var safnað. Niðurstaða þeirrar sýnatöku gefur enn sterkari vísbendingar um góðar göngur kynþroska loðnu í lögsögunni,“ segir í tilkynningu frá SFS.

„Hafrannsóknastofnun fyrirhugar næst loðnuleit og -mælingu í janúar 2021. Þetta tímabil vetrarmælinga er jafnan stutt og á tíma þegar veður eru válynd. Hættan er því sú að mælingar verði ónógar til þess að unnt sé að ráðleggja veiðar á loðnu. Loðnan fer hratt yfir og hegðan hennar er óútreiknanleg. Vera kann að hún sé fyrr á ferðinni nú en síðastliðin tvö ár.

Af þessum sökum vilja SFS stuðla að því að unnt sé að hefja vetrarmælingar fyrr, þannig að skip fari til loðnuleitar og -mælinga í desember, í stað þess að bíða fram á nýtt ár. Samtökin eru því tilbúin að leggja Hafrannsóknastofnun til jafnvirði 65 milljóna króna til loðnuleitar og -mælinga í desember. Styrknum er ætlað að greiða að fullu fyrir úthald fjögurra mæliskipa í allt að 24 daga, kvörðun þeirra og vinnu sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar.

Góð loðnuvertíð getur að líkindum aukið útflutningstekjur um 30 milljarða króna og margföldunaráhrif í hagkerfinu öllu eru að líkindum tvöföld eða þreföld, líkt og með auknum tekjum starfsmanna sjávarútvegsfyrirtækja, sveitarfélaga og þjónustuaðila sjávarútvegs.“

SFS segist gera sér vonir um „að með verulega auknum fjármunum og þunga í loðnuleit og -mælingu megi enn betur tryggja kröftuga viðspyrnu upp úr þeirri efnahagslægð sem kórónuveirufaraldurinn hefur valdið.“