Stytta af Steve Jobs hefur verið sett upp í Budapest og er styttan sú fyrsta sem gerð er af honum.

Upplýsingatæknifyrirtækið Graphisoft borgaði fyrir gerð styttunnar en fyrirtækið hefur verið í viðskiptum við Apple síðan um 1980. Forstjóri Graphisoft, Bojar, segir að Steve Jobs hafi verið goðsögn sem þyrfti að minnast.