Líftæknifyrirtækið Alvotech er komið skrefi nær því að setja á markað hliðstæðu eins söluhæsta lyfs heims. Félagið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu líftæknilyfja, stundum nefnd hliðstæðulyf, sem koma á markað þegar viðkomandi einkaleyfi frumlyfjanna renna út.

Fyrirtækið hefur unnið að þróun líftæknihliðstæðu (e.biosimilars) á söluhæsta lyfi heims undanfarin ár. Um er að ræða líftæknilyfshliðstæðu lyfsins Humira sem er í dag söluhæsta lyf heims og selst fyrir um 20 milljarða Bandaríkjadala á ári (um 2.500 milljarðar króna).

Fyrirtækið tilkynnti í mars á síðasta ári um fasa I og fasa III klínískar rannsóknir í 23 löndum vítt og breitt um Evrópu með þátttöku 900 einstaklinga. Þeim rannsóknum er nú lokið með jákvæðum niðurstöðum. Líftæknilyf hafa rutt sér rúms á síðastliðnum árum en þau hafa sérhæfða virkni við meðhöndlun ýmissa alvarlegra sjúkdóma, eins og krabbameins og gigtar.

Róbert Wessman , stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, segir það mikilvægan áfanga fyrir fyrirtækið að tilkynna jákvæðar niðurstöður fyrstu klínísku rannsókna fyrirtækisins.

„Frá því við hófum starfsemi Alvotech árið 2013 höfum við unnið að því að vera í hópi fyrstu fyrirtækja á markað með stærstu líftæknilyf heims. Nú styttist í markaðssetningu á okkar fyrsta lyfi sem verða ánægjuleg tíðindi fyrir sjúklinga um allan heim þar sem aðgengi þeirra að hágæða lyfjum eykst enn frekar,“ segir Róbert.

„Í dag eru átta lífæknilyf í þróun hjá Alvotech og við höldum áfram að styrkja okkar innviði og fjárfesta í framtíðinni. Um 460 vísindamenn og sérfræðingar starfa nú hjá Alvotech í fjórum löndum og við væntum þess að geta haldið áfram að fjárfesta í íslensku efnahagslífi á næstu árum og skapa mikilvægar útflutningstekjur.“

Alvotech mun framleiða og selja líftæknihliðstæðu lyfsins Humira með samstarfsaðilum sínum á öllum lyfjamörkuðum heims. Með tilkomu lyfsins skapast umtalsverður sparnaður fyrir heilbrigðisyfirvöld um allan heim og rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á aukið aðgengi sjúklinga að nýjum líftæknilyfjum, þegar líftæknihliðstæðulyf koma á markað.

Líftæknilyfshliðstæða Alvotech er frábrugðin lyfjum samkeppnisaðila að því leyti að það er 100 mg/ml formúlering, sem er talin þægilegri fyrir sjúklinga.