Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabanki Íslands hafa undirritað samning um skilmála við framkvæmd á veitingu ábyrgða ríkisins á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja í tengslum við heimsfaraldur kórónaveiru . Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

„Sökum faraldursins standa mörg fyrirtæki frammi fyrir miklu tímabundnu tekjufalli og lausafjárvanda," segir í tilkynningunni. „Af þeim sökum heimilaði Alþingi fjármála- og efnahagsráðherra að veita ábyrgð ríkisins á hluta af viðbótarlánum sem lánastofnanir veita fyrirtækjum, að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Ráðherra var heimilað að semja við Seðlabanka Íslands um framkvæmd ábyrgðarkerfisins.

Markmið kerfisins er að styðja við fyrirtæki sem verða fyrir verulegum áhrifum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og viðbrögðum stjórnvalda vegna faraldursins. Ábyrgðirnar eru liður í því að viðhalda sem hæstu atvinnustigi og fjölbreyttustu atvinnulífi.
Hver lánastofnun getur nýtt tiltekinn hluta af heildarumfangi ábyrgðanna. Viðbótarlán verður að veita fyrir lok árs 2020 og hámarkslánstími frá útgáfu er 18 mánuðir. Horft verður til þess að ábyrgð á einstökum viðbótarlánum verður að hámarki 70%."

Í tilkynningunni segir að lán til einstaks aðila muni að hámarki geta numið tvöföldum árslaunakostnaði árið 2019 og launakostnaður félags verði að lágmarki hafa verið 25% af heildarrekstrarkostnaði þess árið 2019. Ennfremur segir að lán sem njóti ábyrgðar getu hæst numið 1,2 milljörðum króna.

„Endanlegt fyrirkomulag ætti að liggja fyrir innan skamms eftir nánari útfærslu milli Seðlabankans og lánastofnana og í kjölfarið gæti veiting viðbótarlána með ábyrgð ríkisins hafist hjá lánastofnunum," segir í tilkynningunni.