Eftir að hafa verið mest seldi nýi fólksbíllinn þrjá mánuði í röð er Suzuki ekki lengur á meðal tíu mest seldu bílategunda landsins. Subaru er nú á toppnum en hann var í þriðja sæti í júní á eftir Suzuki og Toyota. Toyota kemur fast á hæla Subaru að þessu sinni, með 94 bíla en Subaru seldi 96 bíla. Nissan, sem er frá Ingvari Helgasyni líkt og Subaru, var í þriðja sæti með 51 bíl og Hyundai frá sama umboði var í fjórða sæti með 36 bíla.

Í næstu sætum og með talsvert minni sölu komu Mitsubishi, Kia, Renault, Chevrolet, Volkswagen og Ssangyong, sem seldi átta bíla í mánuðinum. Suzuki kom svo í 11. sæti með 7 bíla.