Veitingastaðnum Subway á Ísafirði verður lokað frá og með 1. september næstkomandi. Þetta kemur fram á vef Bæjarins Besta.

Subway opnaði veitingastað á Ísafirði sumarið 2012 en samkvæmt Ingibjörgu Eðvaldsdóttur, mannauðsstjóra hjá Stjörnunni ehf., sem rekur Subway staðina á Íslandi, er ekki rekstrargrundvöllur fyrir starfseminni fyrir vestan.

„Núverandi verslunarstjóri hefur lyft staðnum upp og bætt reksturinn en það dugar ekki til. Staðurinn er ekki nógu vel sóttur, ekki einu sinni þegar bæjarhátíðirnar standa yfir,“ var haft eftir Ingibjörgu á BB.is.

„Þannig að því miður verðum við að loka Subway á Ísafirði 1. september.“