Fjölmörg af iðnvæddari ríkjum heims eiga í vandræðum hvað varðar lága fæðingatíðni, en eitt allra versta dæmið hlýtur þó að vera Suður Kórea.
Ekki nóg með að suður kóreska þjóðin sé að eldast líkt og Japan og Bandaríkin, þá er fæðingatíðni einnig að lækka og sífellt færri konur kjósa að ganga í hjónaband. Samkvæmt Brookings stofnuninni gæti svo farið að enginn Suður-Kóreubúi verði eftir árið 2750.
Árið 2013 féll fæðingatíðni í Suður Kóreu niður í sína lægstu tölu frá því að skráning hófst, en einungis 8,6 börn fæddust fyrir hverja 1000 íbúa. Fjöldi fæðinga dróst saman um tæp tíu prósent.
Þá kom fram í könnun sem stjórnvöld stóðu fyrir að einungis 45,6% kvenna á aldrinum 9 til 24 ára lýstu yfir áhuga á því að gifta sig einhvern tíma í lífinu, á meðan 62,9% karlmanna vilja gifta sig.
Að meðaltali mun hver kona í Suður-Kóreu fæða 1,187 börn á lífsleiðinni og er það fimmta lægsta fæðingatíðni í heiminum.
Samkvæmt Brookings gætu Suður-Kóreubúar orðið útdauðir árið 2750 ef þessi fæðingatíðni breytist ekki. Þá er gert ráð fyrir því að landið muni ekki sameinast Norður-Kóreu á ný eða taka á móti fjölda innflytjenda.
Suður-Kóreubúar eru 50,2 milljónir í dag en gæti fækkað niður í 20 milljónir áður en öldin er á enda. Næststærsta borgin Busan yrði auð árið 2413 og höfuðborgin Seoul myndi þrauka rétt tæpum 100 árum lengur, eða til 2505.
Þó ber að geta að þessi spá nær 735 ár fram í tímann og er ljóst að ýmsir óvissuþættir eru til staðar. Þó er ekki hægt að neita því að Suður-Kórea stendur frammi fyrir alvöru vandamáli.