Foreldrum leikskólabarna í Reykjavík verður boðinn aukinn sveigjanleiki á töku orlofsdaga í sumar, með sumaropnun eins leikskóla í hverju hverfi borgarinnar frá fyrstu viku í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi.

Alls verða sex leikskólar opnir í allt sumar, líkt og síðastliðið sumar. Aðrir leikskólar munu, líkt og áður, loka í fjórar vikur yfir sumarið en öll leikskólabörn skulu að minnsta kosti taka 20 virka daga samfleytt í sumarleyfi.

Sumarlokun í sérhverjum leikskóla er ákveðin í samráði við foreldraráð og að undangenginni könnun meðal foreldra segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Flytjist barn af leikskóla sem er með sumarlokun yfir í sumaropnunarleikskóla fylgir starfsmaður af fyrrnefnda leikskólanum  í sumaropnunarleikskólann til að auðvelda aðlögun barnsins.

Foreldrar geta, fram til 25. mars, sótt um vistun í sumaropnunarleikskóla hjá þeim leikskólastjóra þar sem barnið hefur fasta vistun. Sækja þarf um samfellda vistun og að lágmarki eina viku. Ef ekki er sótt um verður gert ráð fyrir að barnið taki sumarleyfi á sama tíma og leikskólinn þeirra.

Eftirfarandi leikskólar verða með sumaropnun sumarið 2020:

  • Bakkaborg í Breiðholti
  • Bjartahíð í Miðborg/Hlíðum
  • Drafnarsteinn í Vesturbænum
  • Lyngheimar í Grafarvogi
  • Rofaborg í Árbæ/Grafarholti
  • Vinagerði í Laugardal/Háaleiti