Kauphöllin hefur ákveðið að frá og með 26. mars næstkomandi verði mörkuðum hennar lokað á sama tíma og hlutabréfamörkuðunum í Stokkhólmi og Helsinki eða laust fyrir kl. 17:30 að Mið-Evróputíma. Breytingin er hluti af aukinni samræmingu í viðskiptaumhverfi kauphallanna innan OMX samstæðunnar til hagræðis fyrir fjárfesta segir í tilkynningu.

Fastur lokunartími að Mið-Evróputíma þýðir að lokunartími að staðartíma breytist á milli sumars og vetrar. Að staðartíma munu markaðir Kauphallarinnar loka um hálftíma fyrr en nú er (15:30) á sumrin en um hálftíma síðar (16:30) á veturna. Viðskipti í Kauphöllinni munu hins vegar hefjast á sama tíma og nú. Samfelld viðskipti hefjast því eftir sem áður kl. 10 að staðartíma.

"Það er ánægjulegt að kynna þessa breytingu nú þegar samþætting Kauphallarinnar við OMX er að komast á lokastig og styttist í að skráð félög verði kynnt með öðrum félögum í Nordic Exchange. Kauphöllin hefur lengi lagt áherslu á samræmingu við aðra markaði innan OMX og samstilltur lokunartími er enn eitt skrefið sem auðveldar aðgengi að íslenska markaðnum,? segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, um breytinguna í tilkynningunni.

Ofangreind breyting á lokunartíma fékk afgerandi stuðning í könnun sem Kauphöllin gerði meðal kauphallaraðila. Kauphallaraðilar sem standa að baki um 90% viðskipta studdu hana og sumir vildu jafnvel ganga enn lengra og breyta upphafstíma viðskipta þannig að hann yrði ávallt hinn sami að Mið-Evróputíma. Hljómgrunnur fyrir breytingu á upphafstíma viðskipta reyndist þó ekki nægur til að réttlæta slíka breytingu að sinni.

Í tilkynningunni kemur fram að Kauphöllin álítur þessa breytingu til heilla fyrir markaðinn. Í inngöngu Kauphallarinnar í OMX felast tækifæri fyrir útgefendur og kauphallaraðila. Sýnileiki eykst til muna og reikna má með auknum áhuga erlendra fjárfesta. Aukið samræmi í viðskiptaumhverfi Kauphallarinnar og annarra kauphalla innan OMX, þannig að sama umhverfi blasi við markaðsaðilum hvar sem þeir vilja eiga viðskipti, sýnir að íslenski markaðurinn er í reynd hluti af stærra markaðssvæði og þannig er erlendum fjárfestum auðvelduð aðkoma að markaðnum segir í tilkynningunni.