Með ákvörðun nr. 17/2009 ákvað Neytendastofa að banna ekki Reykjanesbæ að nota heitið Vatnaveröld á sundmiðstöð bæjarins.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en gæludýraverslunin Vatnaveröld kvartaði til Neytendastofu yfir notkun Reykjanesbæjar á heitinu þar sem mikill ruglingur skapaðist milli þeirra. Gæludýraversluninni bærust t.a.m. símtöl með fyrirspurnum um opnunartíma og óskilamuni.

Neytendastofan segir að þar sem aðilarnir eru ekki keppinautar á markaði taldi stofnunin notkun Reykjanesbæjar á heitinu ekki valda hættu á því að neytendur rugluðust á fyrirtækjunum eða kæmu til með að eiga viðskipti við rangan aðila.

Sjá nánar hér.