Ísbúðin Brynja á Akureyri hefur verið seld, en Fríður Leósdóttir hefur átt og rekið ísbúðina Brynju í 30 ár.
Hún vill þó ekki greina frá því hverjir kaupendurnir séu en segir þó að það séu „menn að sunnan“.
Fríður, eða Fía í Brynju, mun þó áfram sinna rekstrinum undir stjórn nýrra eigenda og segir að ísinn muni ekki taka neinum breytingum.í
Norðlenski fréttamiðillinn Vikublaðið greinir frá .